Innleiðing gervigreindar
Gervigreind sem stendur undir sér í rekstrinum.
Rótgróin fyrirtæki þurfa ekki fleiri tilraunaverkefni í gervigreind. Þau þurfa fá sem virka, eru mæld miðað við upphafsstöðu og lúta nógu góðum reglum til að hægt sé að stækka þau. Aðferð okkar er vísvitandi vönduð: kortleggja áður en smíðað er, sanna áður en stækkað er.
Vandinn
Af hverju flest gervigreindarverkefni stranda
Tilraunir án upphafsstöðu
Enginn mældi ferlið fyrir tilraunina og því getur enginn sýnt hvað hún skilaði. Eftir situr tilfinning, ekki niðurstaða.
Verkfæri á undan verkferlum
Leyfi eru keypt og demo’in heilla, en vinnan sjálf breytist ekki. Ávinningurinn kemur af því að breyta því hvernig verkið er unnið.
Reglur í lokin
Persónuvernd, öryggi og gervigreindarreglugerð ESB (EU AI Act) koma upp rétt fyrir innleiðingu og stöðva hana. Séu þær hannaðar inn frá byrjun verður stækkunin örugg.
Aðferðin
Fimm áfangar, hver með hliði
Enginn áfangi hefst fyrr en komist er í gegnum hlið þess síðasta. Þess vegna er aðferðin hæg í byrjun og hröð í lokin.
- 01
Kortleggja
Fara í gegnum raunverulega verkferla með fólkinu sem vinnur þá. Skrá gögnin. Mæla tíma, kostnað og villutíðni eins og þau eru í dag.
AfurðFerlakort, gagnaskrá og mæld upphafsstaða.
HliðÁbyrgðaraðili ferlisins samþykkir upphafsstöðuna.
- 02
Forgangsraða
Meta hvert notkunartilvik eftir ávinningi, framkvæmanleika, stöðu gagna og áhættu. Velja tvö eða þrjú, ekki tuttugu.
AfurðForgangsraðaður listi notkunartilvika.
HliðHvert valið tilvik hefur ábyrgðaraðila og fjárheimild.
- 03
Sanna
Smíða minnstu tilraun sem prófar áhættusömustu forsenduna, í raunverulegri vinnu, í afmarkaðan tíma og með stöðvunarviðmiði sem sett er fyrir fram.
AfurðMæld niðurstaða miðað við upphafsstöðu.
HliðMarkmiðinu er náð, eða tilraunin er stöðvuð.
- 04
Stýra
Persónuvernd samkvæmt GDPR, áhættuflokkun samkvæmt gervigreindarreglugerð ESB, öryggi, eftirlit manna, val á líkönum og birgjum, skjölun.
AfurðStjórnunarskjöl og verklagsreglur.
HliðÁbyrgðaraðili, persónuverndarfulltrúi og öryggisstjóri samþykkja.
- 05
Stækka
Innleiða, þjálfa fólk og breyta ferlinu, ekki aðeins verkfærinu. Fylgjast með gæðum og kostnaði mánaðarlega.
AfurðÍ daglegum rekstri með umsömdum mælikvörðum.
HliðÁvinningurinn helst þremur mánuðum eftir innleiðingu.
Meginreglur
Hvað vönduð aðferð þýðir í reynd
- 01
Mæla fyrir og eftir
Án upphafsstöðu er engin niðurstaða, aðeins skoðun. Við mælum fyrst, jafnvel þótt það virðist hægt.
- 02
Þau sem vinna verkið hanna breytinguna
Þau vita hvert tíminn fer og hvar villurnar læðast inn. Breytingin festist þegar þau móta lausnina.
- 03
Minnsta lausn sem sannar virði
Töflureiknir, vel orðuð fyrirmæli og yfirferð sanna oft meira á tveimur vikum en heilt kerfi á hálfu ári.
- 04
Stöðvunarviðmið fyrir fram
Áður en tilraun hefst skrifum við niður hvaða niðurstaða myndi stöðva hana. Annars lítur hver niðurstaða út sem árangur.
- 05
Halda valkostum opnum
Líkönin breytast mánaðarlega. Við hönnum svo að skipta megi um líkön og birgja og að gögnin séu áfram ykkar.
- 06
Gervigreindarþjónar undir eftirliti
Þegar gervigreind framkvæmir aðgerðir, en skrifar ekki aðeins texta, fær hún skýrar heimildir, fulla skráningu og nafngreindan ábyrgðaraðila.
Hafa samband
Hefjum samtalið
Hvort sem þú ert að meta fjárfestingu, búa fyrirtækið undir gervigreind eða byggja eitthvað nýtt, þá ræðum við gjarnan við þig.