Fara í meginmál

Ráðgjöf

Ráð frá fólki sem hefur staðið í rekstri.

Við vinnum með stjórnum og stjórnendum rótgróinna fyrirtækja að ákvörðunum þar sem mistök eru dýr: hvar á að vaxa, hvernig á að innleiða gervigreind og hvernig á að fjármagna það.

Viðfangsefni

Þrenns konar verkefni

Stefna og vöxtur erlendis

Val á mörkuðum, verðlagning og söluferli sem endurtekur sig. Við byggðum upp fyrirtæki sem fékk meira en 95% tekna sinna erlendis frá og vitum hvað þarf til frá litlum heimamarkaði.

Innleiðing gervigreindar

Vönduð aðferð í fimm áföngum sem hefst á því hvernig vinnan er raunverulega unnin og lýkur með mældum árangri í daglegum rekstri. Aðferðinni er lýst í heild á sérstakri síðu.

Fjármögnun og viðskipti

Undirbúningur fyrir fjárfesta, verðmat og kynningarefni, auk greininga á mörkuðum og mögulegum yfirtökum, skilað sem skýrslum og lifandi líkönum.

Innleiðing gervigreindar

Verklag

Stutt, skriflegt og mælanlegt

  1. 01

    Fyrsta samtal

    Við hlustum á ákvörðunina sem bíður þín og segjum hreinskilnislega hvort við séum réttu aðilarnir til verksins.

  2. 02

    Greining

    Nokkrar vikur af viðtölum, gögnum og opinberum heimildum sem lýkur með stuttu minnisblaði: hvað við fundum, hvað það merkir og hvað við myndum gera.

  3. 03

    Áætlun með áföngum

    Hver áfangi hefur ábyrgðaraðila, mælikvarða og dagsetningu. Sýni áfangi að áætlunin sé röng breytum við áætluninni.

  4. 04

    Afhending

    Þú átt niðurstöðuna: skjöl, líkön og rökin að baki þeim, skrifuð svo að teymið þitt geti haldið áfram án okkar.

Það sem þú færð

  • Skrifleg skýrsla á íslensku eða ensku, eða báðum málum.
  • Lifandi Excel-líkan þar sem tölur skipta máli, svo að þið getið sjálf breytt forsendunum.
  • Heimildir fyrir hverri tölu og skýr skil milli staðreynda, áætlana og okkar mats.

Hafa samband

Hefjum samtalið

Hvort sem þú ert að meta fjárfestingu, búa fyrirtækið undir gervigreind eða byggja eitthvað nýtt, þá ræðum við gjarnan við þig.