Sprotar
Kannaðu samleið við ACAP
Stutt fyrsta samtal við stafrænan fulltrúa Arnars Laufdal. Það tekur um tíu mínútur, og Arnar les samantektina og svarar sjálfur.
Hvernig samtalið fer fram
- 01
Spurningar um fyrirtækið
Fulltrúinn spyr um vandann sem þið leysið, hve langt þið eruð komin, hvað viðskiptavinir hafa gert, teymið, markaðinn og fjármögnunina. Ein spurning í einu.
- 02
Þú segir hver þú ert
Eftir fyrstu spurningarnar velur þú hvernig þú auðkennir þig. Með LinkedIn getur þú sent viðhengi, og með rafrænum skilríkjum getur þú líka svarað á myndfundi ef þú ert í síma eða við tölvu með myndavél.
- 03
Arnar svarar sjálfur
Fulltrúinn lofar engu og metur ekkert upphátt. Arnar les samantektina, horfir á myndböndin og hefur samband.
Fulltrúinn byggir á gervigreind og er ekki Arnar sjálfur. Ef Arnar er leiðsögumaður fyrirtækisins á vegum KLAK VMS ræðir hann ekki fjárfestingu við ykkur, og þá lýkur samtalinu strax.
Persónuvernd
ACAP ehf. vistar samtalið, og ef þú auðkennir þig einnig nafn, netfang, LinkedIn-slóð, viðhengi og myndbönd. Aðeins Arnar hefur aðgang að gögnunum, og þau eru eingöngu notuð til að meta hvort samleið sé við fyrirtækið ykkar. Gögnunum er eytt innan tólf mánaða nema frekara samstarf hefjist. Kennitala er aldrei vistuð. Þú getur hvenær sem er beðið um að gögnunum verði eytt með því að skrifa á arnar@acap.is.